Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
121. löggjafarþing 1996–1997.
Nr. 11/121.
Þskj. 1127 — 310. mál.
Þingsályktun
um skipun nefndar um kaup eða leigu skólabáts.
Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að skipa nefnd til að kanna forsendur fyrir kaupum eða leigu á skólabát, einum eða fleiri.
Nefndin skili áliti sem fyrst.
Samþykkt á Alþingi 7. maí 1997.